miðvikudagur, mars 23, 2005

hlutir á röngum stað

Aðeins blautt veður og svalt, rigning af og til en mest logn. Á svoleiðis degi eru stuttbuxur og gömul lopapeysa við hæfi, líka inni. Fer út, skrepp eiginlega bara, yfir götuna og í óhátíðarlega heimsókn. Líður einkennilega á leiðinni. Eitthvað sem passar ekki, en hvað?

Jæja, auðvitað. Lopapeysa og regnhlíf. Sei sei.

Engin ummæli:

 
Hvaðan þið eruð